ALDA

ALDA

ALDA: Klínísk málsýnagreining er veflausn sem er hönnuð af talmeinafræðingum fyrir talmeinafræðinga. Við notum máltækni og gervigreind til þess að breyta tali í texta, sækja upplýsingar úr bæði upptökum og afritunum og setja þær fram með skýrum hætti. Lausnin nýtist í skimun, greiningu og mati á því hvort meðferð skili árangri.

Við mælum til dæmis að lengd hika og hléa, flækjustig beyginga og setninga, fjölbreytni orðaforða og dreifingu orðflokka. Á nokkrum sekúndum fást töluleg gildi úr málsýnum sem talmeinafræðingur væri annars 2-3 klukkustundir að sækja handvirkt. Auk þess náum við að mæla breytur sem aðeins er hægt að greina með máltækni.

Til viðbótar við málsýnagreininguna getur talmeinafræðingur notað ÖLDU til að halda utan um niðurstöður staðlaðra prófa og matslista. Til verður yfirlit yfir færni skjólstæðingsins sem nýtist í mat á því hvort áframhaldandi meðferð skili árangri. Almennt er mikil þörf á tækniyfirfærslu og stafrænni umbreytingu í starfi talmeinafræðinga, við hönnuðum lausnina sem við viljum sjálf nota.